Friday, October 29, 2010

Óvissuferð

Mættir: Daníel, Siggi, Reynir, Jónína, Bjössi, Rafn, Albert, Margeir og undirrituð.

Veðurskilyrði: Logn og 7 stiga hiti. Yndisgott veður.

Við mættum galvösk í Laugarból, höfuðstað Ármenninga í Laugardal. Daggskipan þjálfara hljómaði upp á 5x600 metra spretti. Við lögðum í hann ... og tókum framúrstefnulegan *hóst* upphitunarhring... leið sem aldrei hefur verið hlaupin áður *hóst* .... Þegar um það bil 3 km lágu í valnum kvað Hvíti Kenýa sér hljóðs - hann var með tilkynningu!!! ...... andrúmsloftið varð kyngimagnað því það er ekki á hverjum degi sem þessi rólyndis maður óskar eftir því að hafa orðið! ... og hvað þá að luma á tilkynningu. Reynir varð óöruggur og Siggi vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið. Undirrituð hlustaði með andakt og Jónína beið spennt á kantinum ...... rafmögnuð spenna ....... Þjálfari ætlaði að BREYTA dagsskipan. Engir 5x600 metra sprettir í dag kæru vinir - nei - fartleikur skyldi það vera! Við vorum níu talsins á æfingu og því sjálfskipaðir hraðastjórar á einhverjum tímapunkti á æfingunni. Allir áttu að stýra tveimur sprettum, minnst 100 metra langir, mest 1000 metra langir. Ergo 18x100 til 1000 metra sprettir. Mikil óvissa í uppsiglingu, ekki gott fyrir fólk sem er fyrirfram skipulagt og höndlar óvissu illa.

Til að gera langa sögu stutta varð þetta hin mesta og besta skemmtun - þó með þeirri áherslu á að þetta var suddalega erfið æfing!! Afrekshópshlauparar voru eins og útspýtt hundskinn um allan Laugardal og umhverfi .... allir á sínu besta tempói. Þegar fór að síga á seinni hlutann fannst undirritaðri (og Bjössa) nóg um ... þetta var bara miklu erfiðara en nokkru sinni fyrr.... 6 x 1000 metra sprettir í Öskjuhlíðinni fölna við hlið þessarar æfingar, það er morgunljóst.

Uppskeruhátið laugardagsins var rædd. Þar viðraði undirrituð, við undirtektir Jónínu, að það þyrfti að endurskipuleggja verðlagningu á matar-og drykkjarpakka kveldsins. Undirrituð fer að falla undir þann flokk að vera nöldrari með áframhaldandi nöldri.

Jæja, mál að linni.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

No comments:

Post a Comment