Wednesday, October 27, 2010

Sprettæfing í Höllinni

Mættir voru Daníel, Siggi, Bjössi, Kristján, Jónína og Halldóra og einn nýr sem ég veit því miður ekki hvað heitir.
Eftir upphitunarhring um Laugardalinn var haldið inn í höll þar sem teknir voru 15 200 metra sprettir. Gaman að breyta til og vera inni en það þarf aðeins að venjast þurra loftinu. Góðir sprettir sem tóku vel í. Eftir hefðbundið niðurskokk voru teknar 700 magaæfingar í boði Sigga. Nei þetta er ekki ritvilla, alveg satt :-)

Tekin var ákvörðun um að taka styrktaræfingar eftir sprettæfingar og talaði Daníel um að hann ætlaði einnig að senda okkur upplýsingar um styrktaræfingar og liðleikaæfingar.

JG

No comments:

Post a Comment