Mættir: Daníel, Jónína, Bjössi, Reynir, Kristján, Albert, Siggi seini, Jóhanna og undirrituð.
Veðurskilyrði: 3ja stiga hiti, smá vindur hér og þar og heiðskírt. Ergo, himneskt vetrarveður :)
Í dag er hátíðardagur hjá Afrekshópnum. Uppskeruhátið verður haldin í kvöld þar sem afrekum síðustu missera verður fagnað með öli og mat. Í tilefni af þessum gleðidegi lagði þjálfari vor til að við hlypum ríkishringinn alræmda í Heiðmörk. Fólk er greinilega búið að gleyma þjáningum sínum og leiðindum (?) síðan í sumar frá ótalmörgum hlaupnum ríkishringjum því Afrekshópsmeðlimir samþykktu þessa hlaupaleið án nokkurra mótmæla! Til að rifja upp líðandi sumar var það einmitt lenskan að hlaupa lágmark tvo hringi .... yfirleitt þrjá ... en þeir allra klikkuðustu fóru fjóra. Fólk var farið að fá leiða á þessari leið ... og Jónína gekk svo langt að mótmæla í eitt skiptið og mætti ekki á æfingu við Helluvatn!! Þetta þóttu róttækar aðgerðir hjá annars mikilli rólyndis konu. Sumir brugðu á það ráð að hlaupa hringinn öfugan til að fá tilbreytingu í líf sitt ... og þá fórnuðu aðrir Afrekshópsmeðlimir, sem hlupu réttsælis, höndum - þetta passaði bara hreinlega ekki í þeirra litlu, þröngu ríkishringsveröld.
Nú, ef við víkjum að æfingu dagsins þá var hún bara nokkuð ágæt. Veðurguðirnir voru hressir í dag og létu okkur í té hið fínasta hlaupaveður þó að hann hafi verið nokkur svalur á vindaköflunum.
Undirrituð átti nokkuð erfitt í hringnum enda rifjuðust upp erfiðar æfingar síðasta sumars. Guði sé lof að það var bara einn hringur á dagskrá í dag.
Bjössi náði ekki að mynstra sig inn í hringinn í dag - hann fattaði ekki vinstri regluna og týndist. Hljóp bara eitthvert með náladofa í annarri og beinhimnubólgu í hinni .... Að öðru leyti sýndist undirritaðri að hlauparar hafi almennt komið vel undan hlaupi morgunsins og allir skælbrosandi eftir gott og frískandi morgunhlaup!
Næst á dagskrá er tjill og því næst hugguleg kvöldstund með hlaupafélögunum. Ætli þeir eigi öðruvísi föt en hlaupaföt? Það verður spennandi að sjá .... kannski maður verði feimin að sjá félagana í „venjulegum“ fötum :D
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
Bíddu á ekki að mæta í hlaupafötum í kvöld?
ReplyDelete