Saturday, October 2, 2010

Laugardagshlaup á slóðum Valsara

Mættir: Kristján, Siggi, Margeir, Rafn, Barcelona-Bjössi og undirrituð..... auk tveggja umkomulausra Valshlaupara sem áttu sér einskis von.

Veður: Yndisfagurt haustveður. Milt og gott og hlýtt!! Smá andvarið á Kársnesinu en ekkert til að tala um.

Í dag var búið að boða mætingu við höfuðstöðvar Vals-Skokks. Mæting var dræm en komst ekki með tærnar þar sem Valshópurinn hafði hælana því mæting þar er vart frásagnarverð. Eingöngu 2 aðilar af þeim annars fríða flokki sá sér fært að mæta í dag.
Við í Afrekshópnum tókum Valshlauparana undir okkar arma og gáfum þeim náðasamlegast leyfi til að hlaupa með okkur. Siggi fjallahlaupari ákvað að Kársnesið yrði staðurinn í dag og var það samþykkt möglunarlaust.

Það var temmilegur hraði á fólki í dag, svo mikill, að undirrituð rak mjög fljótlega lestina. Örskömmu síðar var hún orðin umkomulaus og sá fram á að hún þyrfti að trítla fyrir Kársnesið alein. Það varð þó ekki að veruleika þar sem þrír vaskir félagar hennar, Siggi fjallahlaupari, Margeir maraþon og Kristján Fjölnishlaupsafreksmaður, sneru við til að tryggja það að henni hefði ekki verið rænt af öðrum hlaupahópum..... fjöldi slíkra hópa er mikill hér í borg og oftar en ekki eru þeir á kreiki snemma á laugardagsmorgnum. Sumir hverjir eru mjög skæðir í hlaupararánum.

Yfirboðari Afrekshópsins hafði sett 60 mínútur + á plan í dag og var því fylgt eftir í hvívetna. Rafn og undirrituð tóku strikið yfir Kársnesið til að hafa þetta sem styst í dag á meðan restin fór upp í Kópavogsdal ... og Guð einn veit hvað dreif á dag þeirra þegar við urðum viðskila. Þeir eru einir til frásagnar.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

1 comment:

  1. Sá að himnastiginn hefði verið tekinn. Slæmt að komast ekki á æfingu og missa af honum.

    ReplyDelete