Thursday, October 7, 2010

Tempó á landsleiksdegi í Laugardal

Mættir: Daníel, Jóhanna, Jónína, Reynir, Barcelona-Bjössi (þó ekki lengur), Kristján, Rafn, Viktor og undirrituð.

Veðurskilyrði: Logn, bjart og hlýtt veður. Yndisgott og fallegt haustveður.

Áætlun þjálfara hljóðaði upp á 4,25 km tempó. Gott og vel. Við lögðum upp frá Laugardalslaug. Þegar 478 metrar voru í valnum áttaði þjálfari vor sig á því að Jóhanna væri týnd og tröllum gefin! Hún var HORFIN. Er hér með lýst eftir henni því til að gera langa sögu stutta fannst kvinnan ekki á þessari æfingu. Síðast þegar sást til hennar var hún í almennum hlaupagalla íklædd skvísujakka yfir. Jóhanna er ca 160 cm á hæð, grannvaxin og með dökkt hár. Ábendingar berist til Afrekshópsmeðlima.
Við vorum þó ekki það sorgmædd að æfingin héldi ekki áfram. Nei, engin miskunn.
Tempóið var tekið með trompi og mátti sjá Afrekshópshlaupara þeysast sem eldingar um Laugardalinn. Þvílíkur hraði, þvílíkur stíll! Þetta sést ekki á hverjum degi.

Að æfingu lokinni þóttist þjálfari vera löglega afskaður vegna landsleiks og tók ekki niðurskokk með restinni af hópnum. Við hin jogguðum huggulegt niðurskokk og skeggræddum um heimsins mál að því loknu.

Næsta æfing á laugardag ... og haldið ykkur fast ..... því upphafspunktur verður Vesturbæjarlaugin! Eins gott að meðlimir Hlaupasamtaka Lýðveldisins byrja sitt hlaup ekki fyrr en 9:30 því við gætum verið handtekin fyrir að ryðjast inn á þeirra yfirráðasvæði.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

2 comments:

  1. This comment has been removed by the author.

    ReplyDelete
  2. Jahérna. Undirrituð var heillum horfin á þessari æfingu - svo mikið er rétt! Stungin af rétt á meðan jakkanum var komið fyrir innandyra. Hefur ekki sést í téðum félagsskap síðan en það horfir til bóta.
    Jóhanna

    ReplyDelete